Miðjan - Stefán Logi: Strokubarnið sem samdi við Bayern Munchen
Fotbolti.net - A podcast by Fotbolti.net

Categories:
Stefán Logi Magnússon strauk að heiman 13 ára gamall og lýst var eftir honum í blöðunum. Rúmlega þremur árum síðar var hann orðinn atvinnumaður hjá Bayern Munchen. Ferillinn hans var þó eins og jójó því næstu árin var hann atvinnumaður en kom heim og spilaði í 2. og 3. deild áður en ferillinn fór á flug að nýju og hann varð atvinnumaður og landsliðsmarkvörður Íslands. Stefán Logi er gestur í podcastþættinum Miðjunni á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Strauk að heiman 13 ára og lýst eftir honum í blöðunum - Samdi við Bayern Munchen 16 ára - Grjótharðar refsingar hjá Bayern - Varð vinur Gerd Muller án þess að vita hver hann væri - Lothar Matthaus öskraði á hann á æfingu - Vinskapurinn við Owen Hargreaves - Heppinn að missa ekki fótinn hjá Bayern - Ottmar Hitzfeld lokaði á hann fyrir að svara ekki í símann - Saga um að hann hafi stolið peysu - Byrjaði meistaraflokksferilinn á að slá út Ravelli - Æfði með danska landsliðinu fyrir HM 2002 - Spes tími hjá Bradford á Englandi - Hætti í fótbolta 23 ára og varð meðferðarfulltrúi í Svíþjóð - Endaði óvænt með KS í 1. og 2. deild og féll fyrir félaginu - Seldur til Hvatar í 3. deild á háa upphæð fyrir einn leik - Sló Stjána Finnboga út hjá KR - Tíminn með landsliðinu eftir að hafa gagnrýnt þjálfarann - Liðsfélagi í Selfossi gekk útaf í miðjum leik - Lenti saman við Helga Sig eftir tap gegn FH í fyrra - Er hann hættur í fótbolta? - Skjaldarmerkið á öxlinni